Ástu blogg

Besta bloggið

10.03.2008 09:15:08 / asta

SMÁSAGA

 

Jæja þar sem ég er alltaf svo dugleg að blogga kemur hérna ein sniðug færsla.

Ætla að segja ykkur smá sögu.

 

Eitt kvöldið hringdi síminn stelpan svaraði og það var kunnuleg rödd á hinum enda línunar.... símtalið var stutt ákveðið var að hittast heima hjá henni síðar um kvöldið. Tíminn leið og svo var dyrabjölluni hringt stelpan fór til dyra og þar stóð strákurinn. Hún bauð honum inn þau fóru inní stofuna þar stóðu þau um stund svo færði strákurinn sig nær henni og kysti hana, úff þvílíkur koss, þegar kossinum lauk settust þau í sófann og þar héldu kossarnir áfram. Eftir stutta stund ákváðu þau að færa sig yfir í annað herbergi og þar héldu kossarnir áfram og þau “bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb”

Og “bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb bíbb”

Eftir það þá settust þau í sófann og hlustuðu á tónlist og töluðu saman um allt milli himins og jarðar. Seinnt um nóttina þurfti strákurinn að fara heim. Eftir sat stelpan alein hugsaði um nóttina og spurningin “hvað ef” fékk ekkert svar seint og síðar meir sofnaði hún alein.


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 19:37:00 / asta

Ég bara skil ekki sumt fólk

 

Suma daga skil ég bara ekki fólk.... um daginn var ég stödd í partyi og þar var strákur að spila á gítar og syngja frumsamið lag og lagið er bara brjálæðislega flott og hann er með sjúklega flotta rödd. Ég þurfti náttla að tjá mig um þetta undrabarn og sagði tónlistarmanni frá honum því alvöru tónlistarmenn eru ekki á hverju horni. En þá bara fékk ég það yfir mig að hann gæti hvorki samið né sungið og hann gæti bara ekki neitt væri bara ömulegur og sagði margt miður fallegt og eini maðurinn sem gæti eitthvað væri hann sjálfur (ekki ætla ég að tjá mig um skoðun mína á þessum tónlistarmanni) en tónlistarmaðurinn hefur aldrei heyrt í undrabarninum syngja og spila svo í raun hefur hann ekkert um þennan unga dreng að segja. En nokkrum dögum áður en ég sagði tónlistarmanninum frá undrabarninu vorum við búin að vera að rökræða um þá frábæru hljómsveit DALTON og mér finst textarnir flottir og söngvarinn með flotta rödd og auðvitað var tónlistarmaðurinn ósamála mér og úthúðaði Dalton og sagði að söngvarinn gæti alls ekki sungið. En svo var ég að lesa bloggið hjá þessum tónlistarmanni í dag og viti menn þar talar hann svo fallega um Dalton og hann ætlar að leifa þeim að taka tvö lög sem hann samdi. Þvílík sleikja sem þessi maður getur verið setur útá fína tónlistarmenn en hrósar sjálfum sér og svo þegar einhver vill tónlistina frá honum þá eru allir englar sem áður voru verstu tónlistarmenn heimsins.

 

Varð bara að deila þessu með ykkur þar sem ég bara skil ekki svona fólk og ætla ekki einu sinni að reyna að skilja það búin að losa mig við reiðina og hef bara ekkert meira að segja.

 

seeya


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 17:06:30 / asta

kynlíf

Á venjulegum átta tíma vinnudegi hugsa konur 34 sinnum um kynlíf samkvæmt nýrri könnun, eða einu sinni á 14 mínútna fresti. Þetta kemur kannski ekki á óvart þar sem ein af hverjum þremur konum kvartar undan kynlífssvelti.

Rúmlega 1.000 konur tóku þátt í könnuninni, sem var gerð fyrir stefnumótasíðuna Dating Direct. Fram kemur að tæpur helmingur kvennanna eru óánægðar með kynlífið, sem leiði til kynlífsóra yfir daginn. 

Þá segja sjö af hverjum 10 konum verja um klukkustund á dag í að hugsa um kynlíf.

Samkvæmt könnuninni eru það fyrst og fremst makar þeirra eða stjörnur sem konurnar ímynda sér njóta ásta með. Næst koma ókunnugir menn, sem konurnar hafa tekið eftir, og fyrrverandi elskhugar.

Fimmtíu og þrjú prósent kvenna viðurkenna að þær séu skotnar í einhverjum í vinnunni.

Þá kemur fram í rannsókninni að um 40% kvenna ímyndi sér að þær séu að njóta ásta með öðrum manni á meðan þær eru að stunda kynlíf með sínum maka. Sjö prósent þeirra hafa hrópað nafn annars manns á meðan ástaratlotunum stóð.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 14:58:10 / asta

DJAMMIÐ

Þá kemur lokksins að því að ég geti sagt frá djammi.
Byrjum bara þar sem ég vil og það er þegar ég labbaði í næstu götu í alveg grenjandi rigningu ógeðslegt vægt til orða tekið en ég komst á leiðarenda til stelpu sem ég er að vinna með fengum okkur eitt staup svona á meðan hún var að gera sig reddí. Svo var ferðini heitið í Jónsbúð þar sem var alveg fullt af fólki mætt enda við með þeim síðustu á staðinn. Það var alveg heljarins stuð þarna fullt af skemtiatriðum og bröndurum alveg merkilegt hvað þessu fólki dettur í hug en ég hló allavega að þessu öllu saman enda bara gaman svo steig á stokk undur maður og ég er ekkert að draga neitt af því að hann er með ferlega flotta kassagítart rödd og hann að semja lög og texta svo það var bara gaman að hlusta svo síðar um kvöldið þá kom annar með gítarinn og annar svo þeir voru 2 að spila fullt af flottum lögum. Eftir að þessu partyi lauk fórum við á mörkina og ég sver það ég hef ekki hugmynd um hver var þar eða hvort ég þekkti einhvern þarna var komin vel í glas og var bara ekkert að spá í fólkinu þarna en soppið varð stutt þarna og var ég bara komin heim á skikkanlegum tíma aldrei þessu vant hef ekki átt svona stutt djamm í fjölda mörg ár og er frekar stolt sko þar sem ég get djammað endalaust  En núna er komið nóg af drykkjartali og þar sem ég hef ekkert annað að segja kveð ég núna

SEE YA

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 11:25:24 / asta

smá svona fréttir

 En já það svona allra helsta sem hefur gert hjá mér að undanförnu þá stendur alveg eitt uppúr sonur minn varð 8 ára um daginn alveg merkilegt hvað þessi börn eldast en mamman ekki hún verður alltaf 22 :lol:

Svo er það sko frásögufærandi útum allan heim að ég já ég sagði ÉG ætla að fara á djammið í kvöld það verður svaðalegt vinnuparty svona alvöru party tveir að spila á kassagítar og alveg fullt fullt af fólki  og áfengi auðvitað svo þetta verður alveg öruglega rosalega gaman ef.... ef ég næ að leggja mig áður en ég fer þar sem ég svaf sama og ekkrt í nótt :s en kvarta svo sem ekki undan svefnleysinu :d

 Læt þetta duga núna þarf víst að fara að vinna

SEEYA 

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 17:38:21 / asta

fréttir af EM

Þá er að segja fréttir að utan........ í gær fór ég á leikinn gegn þýskalandi og hágrét yfir þessu öllu saman og strákarnir voru nú svo æðislegir að reyna að lyfta mér aðeins upp eftir leikinn sem þeim reyndar tókst þokkalega vel.

Við fórum nokkur á vel valið veitingahús og fengum alveg æðislegan mat og eftir matinn fórum við á eitt herbergið á hótelinu og þar var gítarinn tekinn upp og haldið smá party en að sjálfsögðu án áfengis (en mér er lofað flæðandi víni með öllu að móti lokknu) en ég er ekki viss um að þið viljið vita hvað gerðist síðar um kvöldið svo ég segi ekki frá því.

En nú fer bráðlega næsti leikur að byrja og eins gott að fara að gera sig klára fyrir hann og kvetja stráka áfram.

 

ÁFRAM ÍSLAND


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 11:50:12 / asta

LÍFIÐ ER LEIKUR

Jæja verð ég ekki að segja eitthvað þó ekki of mikið.

Það er alveg búið að gerast heill hellingur, keypti mér rándýran og glænýjan bíl kostaði bara nokkrar millur og alveg gullfallegur og svo keypti ég mér líka 240 fermetra hús með hevy stórum heitapotti og get ekki beðið eftir sumrinu þá verður öllum boðið í heljarinnar pottaparty ;) 

Svo fékk ég hringingu frá einum aðdáenda mínum sem spilar með íslenska landsliðinu í handbolta  og hann bauð mér út til sín að horfa á leikina sem eru í þessari viku og auðvita tók ég slíku boði enda verð ég á einu besta hóteli bæjarins og get ekki kvartað að fá að vera þarna úti í nokkra daga með þessum gullfallegu drengjum :P  Svo ég verð að enda þessa færstu og koma mér útá flugvöll.  

SEE YA


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2007 23:03:36 / asta

Uppfærsla

Þá er komið að smá uppfærslu. Allir dagar eru eins, vinna og heimilishald svaðalega spennandi. Reyndar bauð ég mig fram í skemmtinefnd í vinnuni og þann 12 næstkomandi verður haldið svaðalegt fjör eins og er er það hernaðarleyndarmál hvað gert verður ;)

 Annars fór ég á leiksýninguna PABBINN um daginn og þessi gaur er algjör snillingur ég hló og hló af honum það sem hann sagði var að mörgu leiti heilagur sannleikur en inná milli voru þetta bara vel valdir brandarar um annars fáranlegan þjóðflokk “pabbinn” 

Það fjölgaði hérna hjá mér líka ég fékk mér eina Dísu sem er handmötuð og er algjör dúlla veit samt ekki enþá hvort þetta er stelpa eða strákur en það er ekki aðalmálið hún er samt pínu hrædd ennþá en er öll að koma til.  

En núna er ég orðin alveg tóm og hef ekkert meira að segja 

 

 SEE YA

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 13:43:00 / asta

REIÐ, REIÐ OG ENN MEIRA REIÐ

Ég get sko alveg sagt ykkur það að það er ekki alltaf auðvelt að vera á leigumarkaðnum, það var fólk að flytja á hæðina fyrir ofan mig og þau eru ekki drauma nágrannar ÓNEI ALLS EKKI. Ég er búin að hræða líftórurnar úr syni mínum því vondi kallinn býr þarna og hann er víst ekkert lamb að leika sér við samsagt par í rugli og það mikklu rugli og skapið leikur nú ekki við vonda kallinn. Svo ég er búin að vara son minn við svona dópistum og vona að ekkert hendi okkur en maður veit samt aldrei svo ég er með varna á. Ég er búin að vera að í allan morgun að skoða íbúðir og er ég með augastað á tvemur og næstu dagar leiða svo í ljós hvort ég geti fest kaup á einni, því ég hef eingan áhuga á að búa hérna og geta ekki tekið úr lás eða leift stráknum að vera einum heima í smá stund svoleiðis líf gengur að sjálfsögðu ekki og hver veit nema að þvottur eða reiðhjólin bara hverfi einn góðan veður og dag og ekki hleyp ég bara útí búð og kaupi föt eða hjól fyrir marga tugi þúsunda eins og ekkert sé. Ég bara varð að fá smá útrás fyrir þessu því ykkur getur ekki órað fyrir hversu reið ég er..:klikk:  

 

SEE YA


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 21:07:11 / asta

HELLO !!!

Já já ég veit alveg að það er langt síðan en málið er bara það að ég er í sumarfríi svo ég má bara ekkert vera að því að hanga fyrir framan tölvuna.... svo er talvan búin að vera biluð og ég bara ætla að gefast upp og kaupa mér nýja um helgina eða eftir helgina..... 

Annars er bara mest lítið að frétta héðan sko bara búin að hanga hér og þar förum ekkert nánar útí það að svo stöddu .... þetta er bara svona HÆ og BÆ blogg er að bíða eftir að leikurinn ÍA – HK klárist svo gaurinn minn komist á skikkanlegum tíma undir sæng þar sem sólin vekur alla eldsnemma á morgnana og það er hamast úti alla daga allan daginn... jæja læt þetta duga núna skrifa vonandi fljótt aftur 

 

SEE YA


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 09:31:07 / asta

Hello !

Jæja þá er komið að því að segja frá einhverju.... en á miðvikudaginn var vinnugleði hjá mér og var mætin klukkan 7 hjá einni gelluni, þar var boðið uppá eitthvað sullum bull veit ekkert hvað þetta var en smakkaðist ágætlega..... svo var haldið uppá miðgarð og þessir kennarar ættu að loka sig inni nei nei segi svona, það var bara fyndið að sjá kennarana í grundóvisjon ég bókstaflega grenjaði úr hlátri .En eftir að Miðgarðurinn var lokaður var haldið á mörkina og ég misti andlitið..... þessi tónlist var til skammar það var alveg ágætlega mikið af fólki þarna inni en einginn þá meina ég einginn að dansa það var einhver teknótónlist spiluð sem einginn hafði heyrt áður en við stelpurnar létum okkur nú hafa það og tókum nokkur vel valin spor á gólfinu.

 Svo var bara haldið heim á leið eftir lokun. Á laugardaginn vakknaði ég við vekjaraklukkuna klukkan 7... já klukkan 7 á laugardegi en ástæðan fyrir því var sú að strákurinn var að fara að keppa í fótbolta og urðum við að mæta snemma í hafnafjörðinn.... ég fór með bróa og konu hans og strákunum þeirra en jú að sjálfsögðu var eldri strákurinn þeirra að keppa líka og voru þeir frændur saman í liði.... spiluðu þeir gæjarnir 3 leiki töpuðu tvemur leikjum en gerðu 1-1 jafntefli í einum en þeim gengur bara vonandi betur næst enda er ekki langt síðan þeir frændur byrjuðu að æfa boltann.......... en svo við tölum meira um boltann þá frétti ég einnig um helgina að frændurnir ætla að flytja saman til englands og spila með MAN UNT og ég fæ ekki að vera með.... svona í alvöru þá gæti ég ekki hugsað mér að litla barnið mitt færi lengra en í næstu íbúð við mig og ekki feti lengra J

 En það þýðir ekkert að fara að slaka á í djamminu því um næstu helgi gerist sá merki atburður sem allir hafa beðið eftir...... jú árgangsmótið mikkla verður haldið í einum hestabásnum hérna uppi sveit og að sjálfsögðu mæti ég þar J En jæja ég ætla að fara að þvottast og svona, svo ég má ekkert vera að þessu bulli þanga til næst

 

 SEE YA


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 10:49:06 / asta

Allt og ekkert

Jæja þá er komið að þessum merka degi..... ég er að fara á vinnugleði í kvöld ég er reyndar ekki enn búin að kaupa mér vökva svo ætli ég geri það ekki bara eftir vinnu í dag.... er samt ekkert voðalega spent fyrir því að fara að drekka sko en kanski maður oppni eins og einn bjór :) Annars er nú voðalega lítið að frétta af mér og mínum.

 

Ég er jú búin að bíða í næstum eina viku eftir grilinu mína það er bara aldrei til það átti að vera komið í síðastalagi í gær en nei ekki var það komið þá og kallarnir í húsasmiðjuni lofuðu mér því í dag svo það er eins gott fyrir þá að standa við sín orð er bara að verða þreytt á að bíða :evil: ÉG VIL FÁ GRILL MAT.

 

En ég hef ekkert meira að segja eins og er svo bara þanga til næst 8)

 

SEE YA


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 19:37:05 / asta

Í hverju er hamingjan fólgin?

Hvernig gera á konu hamingjusama :
Það er ekki erfitt, að gera konu hamingjusama, þú þarft bara að
vera:


1. vinur
2. félagi
3. ástmaður
4. bróðir
5. faðir
6. húsbóndi
7. yfirmaður
8. rafvirki
9. trésmiður
10. pípari
11. handlaginn
12. skreytimeistari
13. stílisti
14. sérfræðingur í kynlífi
15. mannþekkjari
16. sálfræðingur
17. hagfræðingur
18. reiknimeistari
19. góður huggari
20. góður hlustandi
21. skipuleggjari
22. góður faðir
23. snyrtilegur
24. samúðarfullur
25. sportlegur
26. hlýr
27. skemmtilegur
28. aðlaðandi
29. snillingur
30. fyndinn
31. hugmyndaríkur
32. mjúkur
33. sterkur
34. skilningsgóður
35. þokkafullur
36. prúður
37. metnaðarfullur
38. hæfileikaríkur
39. þolgóður
40. skynsamur
41. trúr
42. ábyggilegur
43. ástríðufullur

............og gleymir aldrei að:


44. gefa henni gjafir reglulega
45. fara með henni að versla
46. vera heiðarlegur
47. vera örlátur
48. að stressa hanna ekki
49. horfa ekki á aðrar konur

og um leið þá verðurðu líka að:


50. veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um Sjálfan þig
51. gefa henni allan tíma sem hún þarf
52. gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer.

Það er mjög áríðandi:


53. að gleyma aldrei:

1. afmælisdögum
2. brúðkaupsdögum
3. plönum sem hún hefur ákveðið

TIL AÐ GERA KARLMANN HAMINGJUSAMANN
:

1. Gefa honum að borða
2. Sjá til að hann fái það reglulega
3. og þegja svo....


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 10:35:06 / asta

ALLIR AÐ SVARA :)

  • 1.hvað heitir þú?
  • 2.hvað ertu gamall/gömul ?
  • 3.ertu á lausu eða föstu?
  • 4.hvaða tónlist hlustaru mest á?
  • 5.hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú sérð mig?
  • 6.hvaða 5 hlutir minna þig á mig?
  • 7.ef ég myndi biðja þig um msn-ið þitt, hverju myndiru svara?
  • 8.hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
  • 9.hver er “Idolið” þitt?
  • 9.hvern þykir þig vænst um?
  • 10.ertu ástfanin/n ?
  • 11.hefuru verið ástfangin/n ?
  • 12.Hver er heitasti skemmtistaðurinn í dag?
  • 13.ætlaru að plögga þessu á síðuna þína svo ég geti svarað þessum spurningum hjá þér?

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 09:07:44 / asta

Ég fékk ...

Ég hef bara ekki haft neinn tíma í þetta blogg en eins og fyrri færslan gefur til þá gerðist eitt lítið kraftaverk hérna um daginn ... ég eignaðist lítinn frænda :) alveg gullfallegur strákur þar á ferð :):)

Svo um páskana var ég að flytja alveg í næsta stigagang þvílíkt leiðinlegt að flytja svona ég er alveg að nenna þessu ekki .... og í þessum töluðum orðum ætti ég meira að segja að vera að taka upp úr kössun en msn er nú skemtilegra en þessir kassar ég verð bara að vera duglegri í vikuni og reyna að klára þetta :S stofan hjá mér er öll útí kössum svaðalega töffað..... en þá eruð þig búin að fá einhverjar fréttir af þessu heimili svo ég bara skelli inn seinna

 

SEE YA


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Bloggsíður
Dagsetning
10. febrúar 2012